Umboðsþjónusta - Eimskip Cruise Agency
TVG-Zimsen – Eimskip Cruise Agency býður þjónustu við skemmtiferðaskip sem koma til landsins á hverju sumri og starfar í öllum höfnum landsins með samhæfðri og öflugri stjórnstöð frá Reykjavík.
Meðal þeirrar þjónustu sem TVG-Zimsen – Eimskip Cruise Agency veitir, er aðstoð við áhafnarskipti, útvegun vista, varahluta og læknisþjónustu. Einnig geta starfsmenn séð um viðgerðir og aðrar nauðsynjar sem og umsjón með farþegum/áhöfn sem þurfa að vera eftir í höfn. Öll samskipti skips við höfn, toll og útlendingaeftirlit fara fram í gegnum umboðsþjónustu, auk þess sem TVG-Zimsen sér um að panta flug, gistingu og ferðir til og frá skipum.
TVG-Zimsen sér einnig um alla þjónustu vegna umhleðslusendinga (transit) sem tengjast komu skemmtiferðaskipa.
Allar nánari upplýsingar veita starfsmenn Eimskip Cruise Agency TVG-Zimsen í síma 5600 700. Einnig er hægt að ná í starfsmenn umboðsþjónustunnar í síma 856 0701.