Samstarfsaðilar TVG-Zimsen

 

KÜHNE & NAGEL er helsti samstarfsaðili TVG-Zimsen fyrir flugsendingar frá meginlandi Evrópu og Asíu. Kühne & Nagel er eitt stærsta flutningsfyrirtæki heims. Það hefur yfir að ráða 600 skrifstofum í 94 löndum en um 17.500 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu í heild. Í samstarfi við Kühne & Nagel getur TVG-Zimsen boðið hagstæða flutninga um allan heim.

GREENCARRIER SCANDINAVIA er sænskt fyrirtæki í eigu Björk.Eklund Group og starfar að flutningsmiðlun víða um heim. TVG-Zimsen og GreenCarrier vinna saman að flutningum frá Svíþjóð ásamt fleiri löndum. Í samvinnu við GreenCarrier býður TVG-Zimsen íslenskum fyrirtækjum flutningsþjónustu eins og hún gerist best.

ECU-LINE er leiðandi flutningsmiðlun í heiminum í sjóflutningi á lausavöru (LCL) og býður í samstarfi við TVG-Zimsen vikulega/hálfsmánaðarlega flutningsþjónustu frá Asíu, Suður-Ameríku, Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Afríku, Miðjarðarhafinu og Miðausturlöndum.

PELICAN CARGO er fremur lítið flutningsfyrirtæki sem býður upp á fyrsta flokks flutningsþjónustu í flug- og sjófrakt frá Bretlandi. Fyrirtækið leggur mikið upp úr hagkvæmri, áreiðanlegri og persónulegri þjónustu. Þjónusta þeirra hefur fallið í góðan jarðveg hjá viðskiptavinum TVG-Zimsen.

 

Icexpress getur látið sækja vörur að dyrum sendanda og senda vörur að dyrum móttakanda í Bandaríkjunum og Kanada. Icexpress sér um alla pappírsvinnu sem fylgir sendingum, bæði í út- og innflutningi í Bandaríkjunum.

 


Agility (áður Geologistics) er flutningsmiðlun með meira en 450 skrifstofur í yfir 100 löndum og yfir 20.000 manns starfa hjá fyrirtækinu. Agility býður í samstarfi við TVG-Zimsen flutningaþjónustu í flugi frá Danmörku auk samstarfs á heimsvísu.

MALENSTEIN AIR B.V. er sjálfstæð flutningsmiðlun við Schiphol-flugvöll í Amsterdam og býður fyrsta flokks flutningsþjónustu í flugfrakt frá Hollandi, sniðna að þörfum viðskiptavina.

CMA-CGM

CMA-CGM er þriðja stærsta skipafélag í gámaflutningum í heiminum í dag, með siglingakerfi um öll heimsins höf. Með samstarfi við CMA-CGM getur TVG-Zimsen boðið viðskiptavinum sínum bestu gámalausnir sem völ er á frá öllum heimshornum. Er þetta mikilvægur liður í því að bjóða viðskiptavinum TVG-Zimsen heildarlausnir í þjónustu.

 

AIR MENZIES INTERNATIONAL er flutningsfyrirtæki sem sérhæfir sig í að selja flutningsmiðlurum þjónustu sína. Þjónusta AMI felst fyrst og fremst í vöruflutningum frá flugvelli til dyra móttakanda. Ísland er einn af rúmlega 900 áfangastöðum sem AMI býður viðskiptavinum sínum og hefur TVG-Zimsen séð um að afgreiða sendingar þeirra til móttakenda.

EXPEDITORS er amerísk flutningsmiðlun með höfuðstöðvar í Seattle í Washington. Þjónusta Expeditors felst í flutningum frá dyrum til dyra og birgðahaldi fyrir viðskiptavini. TVG-Zimsen er umboðsaðili Expeditors á Íslandi og sér um að afgreiða sendingar þeirra til móttakenda.

UTi er flutningsmiðlun og er um þessar mundir með 415 starfsstöðvar sem samanstanda af skrifstofum og umboðsaðilum í 130 löndum. Starfsmenn UTi eru um 6.700 og eru höfuðstöðvar fyrirtækisins í Kaliforníu. TVG-Zimsen er umboðsaðili UTi á Íslandi og sér um að afgreiða sendingar þeirra til móttakenda.

UPS-SCS er einn stærsti flutningsaðili í heimi og er með skrifstofur í 200 löndum. Flutningsstarfsemin byggist á rekstri eigin skrifstofa og samstarfi við umboðsmenn um allan heim. Samstarf TVG-Zimsen og UPS-SCS opnar íslenskum inn- og útflytjendum leið að einu öflugasta flutningsneti í heimi.

EIMSKIP hefur viðkomu í höfnum helstu viðskiptaríkja Íslendinga. Á undanförnum árum hefur þjónusta TVG-Zimsen í sjóflutningum aukist verulega með auknu samstarfi við innlenda og erlenda samstarfsaðila. Erlendir samstarfsaðilar og skrifstofur TVG-Zimsen sjá um að safna vörum í gáma sem eru lestaðir í áætlunarhöfnum Eimskips í Evrópu og N-Ameríku.

FLYTJANDI hefur byggt upp öflugt þjónustunet í flutningum innanlands. Að Flytjanda-netinu standa 25 flutningsaðilar sem veita samræmda flutningsþjónustu um land allt. Miðstöð Flytjanda í Reykjavík er á Vöruflutningamiðstöðinni í Klettagörðum en afgreiðslustaðir á landsbyggðinni eru um 80.

TOLLSTJÓRAEMBÆTTIÐ. TVG-Zimsen hefur yfir að ráða öflugum, sérhæfðum tölvubúnaði (SMT) til samskipta við tollinn hvar sem er á landinu vegna inn- eða útflutnings. TVG-Zimsen er í nánu samstarfi við tollyfirvöld um tollafgreiðslu á vörum til að tryggja fagleg vinnubrögð og skjótan afhendingartíma.