Sjósendingar

 

Við hjá TVG-Zimsen bjóðum upp á traustar og öruggar lausnir í sjófrakt. Við höfum góða og reynslumikla samstarfsaðila erlendis og erum í samstarfi við Eimskip sem flytur vörurnar til Íslands.

Við gerum þér verðtilboð og finnum hagstæðustu leiðina með aðstoð samstarfsaðila okkar erlendis hverju sinni. Við sjáum um að sækja vörur til sendanda og tryggjum þér sendingu alla leið.

Við bjóðum upp á einfaldar, traustar og hagkvæmar leiðir.

Þjónusta sem TVG-Zimsen býður viðskiptavinum sínum, hvort sem er í inn- eða útflutningi, í sjófrakt:

• Vara sótt frá verksmiðju eða vöruskemmu
• Sendingu umpakkað ef með þarf
• Sending merkt og búin til flutnings
• Hagstæð flutningsgjöld í boði
• Útflutningsskjöl, tollskjöl
• Farmbréf gefin út
• Vörunni komið til flutningsaðila
• Farmtryggingar í boði
• Vara tollafgreidd á áfangastað
• Vörum ekið heim á hlað til viðskiptavinar

 

Upplýsingar um gáma 

Hvað tekur 20 feta gámur mörg EURO-bretti? 
Hægt er að raða 11 EUR brettum á gólfið í 20 feta gám. 

Hvað eru til margar stærðir af gámum?
Það eru til 2 stærðir, 20 feta og 40 feta. Einnig eru til fleti, hálfgámar, há-gámar, tankgámar, hestagámar o.s.frv.

Hvað komast mörg Eurobretti (0,8m x 1,2m) í 40 ft. þurrgám? 
24 bretti.

Hvað komast margir pallar í 40 feta þurrgám?
24 EUR-pallar og 22 ISO-pallar. 

Hvað er átt við því þegar talað er um hitastýrðan gám? 
Gámur til að flytja varning sem krefst þess að vera í ákveðnu hitastigi á meðan flutningur fer fram t.d. -24°c, 4°c og 0°c og allt eftir því sem viðskiptavinurinn óskar eftir.

Hvað komast mörg Eurobretti (0,8m x 1,2m) í 20 ft. hitastilltan gám?
10 bretti. 

Eru kæligámar aðeins pantaðir fyrir frosna matvöru? 
Meira lýsandi væri að kalla þessa gáma hitastillta gáma frekar en kæli- eða frystigáma. Það er vegna þess að t.d. á veturna getur verið nauðsynlegt að flytja matvöru og annan farm sem ekki má frjósa, á jöfnu hitastigi alla leið, t.d. við stofuhita.