Flugsendingar
TVG-Zimsen býður upp á flugsendingar hvaðanæva að úr heiminum. Við bjóðum upp á traustar og öruggar lausnir í flugfrakt. Við höfum góða og reynslumikla samstarfsaðila erlendis og erum í samstarfi við þau flugfélög sem flytja vörur til Íslands.
Við gerum þér verðtilboð og finnum hagstæðustu leiðina með aðstoð samstarfsaðila okkar erlendis hverju sinni. Við sjáum um að sækja vörur til sendanda og tryggjum þér sendingu alla leið.
Við bjóðum upp á einfaldar, traustar og hagkvæmar leiðir.
Þjónusta sem TVG-Zimsen býður viðskiptavinum sínum, hvort sem er í inn- eða útflutningi, í flugfrakt:
• Vara sótt frá verksmiðju eða vöruskemmu • Sendingu umpakkað ef með þarf • Sending merkt og búin til flutnings • Hagstæð flutningsgjöld í boði • Útflutningsskjöl, tollskjöl • Farmbréf gefin út • Vörunni komið til flutningsaðila • Farmtryggingar í boði • Vara tollafgreidd á áfangastað • Vörum ekið heim á hlað til viðskiptavinar
|