Saga fyrirtækisins

TVG-Zimsen varð til við samruna Tollvörugeymslunnar hf. og Skipaafgreiðslu Jes Zimsens hf. Áður hafði Tollvörugeymslan hf. yfirtekið starfsemi Almennu tollvörugeymslunnar hf. á Akureyri. Rætur fyrirtækisins liggja allt til ársins 1894 er Jes Zimsen stórkaupmaður hóf rekstur umfangsmikils verslunarfyrirtækis í Reykjavík.

Skipaafgreiðsla var deild innan þess þar til hún varð sjálfstætt fyrirtæki árið 1932 og var þá kölluð Skipaafgreiðsla Jes Zimsens. Starfsemin hefur breyst verulega í áranna rás og eigendaskipti hafa orðið nokkrum sinnum. Í upphafi hafði skipaafgreiðsludeild Jes Zimsens umboð fyrir Sameinaða gufuskipafélagið (DFDS), danskt fyrirtæki sem var í siglingum milli Íslands og Danmerkur.

Með breyttum samgöngum, breyttum viðskiptaháttum og auknum innflutningi hóf Skipaafgreiðsla Jes Zimsens að taka að sér aðra þjónustu. Í fyllingu tímans varð fyrirtækið síðan að alhliða flutningsmiðlun sem gat boðið heildarlausnir í flutningum.

Tollvörugeymslan hf. var stofnuð árið 1962 af hópi manna sem Helgi K. Hjálmsson leiddi. Fyrirtækið bauð geymsluaðstöðu fyrir ótollafgreiddar vörur og varð fljótt umsvifamikið á sínu sviði.

Árið 1996 sameinuðust fyrirtækin undir nafninu TVG-Zimsen sem bauð alhliða flutningsþjónustu, svo sem flugsendingar, hraðsendingar, sjósendingar, tollskjalagerð, verðútreikninga, endursendingar, umhleðslusendingar (transit), tollvörugeymslu og frísvæðisþjónustu svo eitthvað sé nefnt.

Í febrúar 2004 flutti TVG-Zimsen alla vöruhúsastarfsemi sína frá Héðinsgötunni í nýtt húsnæði Vöruhótelsins á Sundabakka 2. Vöruhótelið ehf. er sameignarfélag TVG-Zimsen og Eimskips og sér um alla vöruhúsaþjónustu TVG-Zimsen. Skrifstofuaðstaða TVG-Zimsen er í Korngörðum 2 og einbeitir fyrirtækið sér að starfsemi flutningsmiðlunar, þ.e. sjófrakt, flugfrakt og skjalagerð.

TVG-Zimsen hf. er aðili að FIATA (International Federation of Freight Forwarders Associations) og hlaut viðurkenningu fyrir 25 ára aðild að samtökunum árið 1998.