Fréttir

TVG-Zimsen á Akureyri

TVG-Zimsen býður upp á stutt kynningarnámskeið í skíðagöngu í Hlíðarfjalli á Akureyri , í samstarfi við Skíðafélag Akureyrar. Námskeiðin eru fyrir alla áhugasama, þátttakendum að kostnaðarlausu. Fyrsta námskeiðið  var haldið fimmtudaginn 14. Janúar og mættu yfir 100 manns. Skíðafélag Akureyrar stóð sig frábærlega, voru með 12 kennara sem voru í hörku vinnu samtals í yfir þrjá tíma. Næstu námskeið fara svo fram fimmtudaginn 4. febrúar, fimmtudaginn 25. febrúar og fimmtudaginn 18 mars.
TVG-Zimsen á sterka tengingu til Akureyrar og Norðurlands og þjónustar þar mikið af minni sem og stærri fyrirtækjum. TVG Zimsen sér um allt sem snýr að innflutningi og útflutningi þ.e flugfrakt, sjófrakt, tollafgreiðslu og heimakstri.

Til baka