Fréttir
TVG-Zimsen nýr styrktaraðili knattspyrnudeildar Víkings
Knattspyrnudeild Víkings og TVG-Zimsen, undirrituðu í vikunni styrktarsamning til eins árs. Keppnistreyjur Víkings munu því bera merki TVG-Zimsen út keppnistímabilið. Margrét Guðlaug Sigurðardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri, skrifaði undir samninginn af hálfu TVG-Zimsen ásamt þeim Heimi Gunnlaugssyni, varaformanni knattspyrnudeildar, og Haraldi Haraldssyni, gjaldkera deildarinnar.
TVG-Zimsen fagnar samstarfinu við Víking og óskar félaginu velfarnaðar á komandi keppnistímabili.
Sjá einnig tilkynningu á heimasíðu knattspyrnudeildar Víkings, víkingur.net
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er búningur Víkings einning glænýr og var kynntur á vorfögnuði Víkings í dag.

Haraldur Haraldsson, Margrét Guðlaug og Heimir Gunnlaugsson undirrita styrktarsamninginn.
©Birt með góðfúslegu leyfi víkings.net

Nýr búningnur Víkings með TVG-Zimsen framan á.
©Birt með góðfúslegu leyfi víkings.net
Til baka