Fréttir

Saco Shipping GmbH nýr samstarfsaðili TVG-Zimsen í Þýskalandi

TVG-Zimsen og þýska fyrirtækið Saco Shipping GmbH hafa gert með sér samning um sjóflutninga til og frá Hamborg. Saco Shipping GmbH mun sjá um alla flutninga í samstarfi við TVG-Zimsen frá Þýskalandi og Austur-Evrópu. Auk þess mun TVG-Zimsen hafa aðgang að öflugu flutninganeti Saco Shipping GmbH í Asíu og um heim allan. Með þessu er TVG-Zimsen að koma til móts við þarfir viðskiptavina fyrirtækisins, sem eru að flytja vörur frá aðilum á þessu svæði og víðar, bæði hvað varðar verð og þjónustu. Saco Shipping GmbH er með höfuðstöðvar sínar í Hamborg. Saco Shipping GmbH var stofnað árið 1988 og hefur vaxið ört frá þeim tíma.

Til baka