Fréttir
TVG-Zimsen nýr þjónustuaðili LEMA International á Íslandi
TVG-Zimsen hefur tekið við sem þjónustuaðili fyrir breska flutningsfyrirtækið LEMA International. LEMA International var stofnað árið 1968 og sérhæfði sig í flutningmiðlun á milli Íslands og Englands. Síðan þá hefur LEMA þróast í að vera alþjóðlegt flutningsfyrirtæki og þekkt fyrir frammúrskarandi þjónustu. Fyrirtækið hefur mikla reynslu í samskiptum sínum við ensk og íslensk fyrirtæki. Með samstarfinu mun TVG-Zimsen auka þjónustu við þau fyrirtæki sem selja og kaupa vörur í Englandi. TVG-Zimsen þekkir LEMA International frá fyrri tíð og er það ánægjulegt að fá að tilkynna samstarf fyrirtækjanna á ný.
Til baka