Fréttir
TVG flytur bíla fyrir Arctic Trucks
TVG-Zimsen flytur bíla fyrir Arctic Trucks. Arctic Trucks er að vinna að skemmtilegu verkefni sem endar á Suðurskautinu. Arctic Trucks hefur nú sent fjóra bíla með TVG til Höfðaborgar og tveir þeirra halda þann 1. desember til rússneskrar herstöðvar á suðurskautinu. Þar hafa þeir 18 daga til að finna leið upp á hásléttuna sem er í 3000 metra hæð þar sem verður meðal annars háð gönguskíðakeppni á suðurpólinn. Þetta er stórt og mikið verkefni og munu BBC og Discovery gera myndir um þetta.
Til baka