Fréttir

Eimskip tekur við búslóðaflutningum af TVG

Frá og með 1. desember mun Eimskip taka aftur við þjónustu vegna búslóða af TVG. Anna Halla sem séð hefur um þessa þjónustu með miklum sóma hjá TVG mun flytjast yfir til Eimskips og verða hluti af Viðskiptaþjónustu innflutnings (CCI). Elin Eiríksdóttir verður bakhjarl Önnu Höllu í búslóðaþjónustunni ásamt öllum þjónustufulltrúum í CCI.

Anna Halla og Elín (afgreiðsla búslóða og gjaldkeri) munu verða staðsettar á annari hæð þar sem SIMMI er staðsettur nú. 

Nýtt símanúmer búslóðaflutninga er 525 7550 og netfangið buslodir@eimskip.is.

Til baka