Fréttir

TVG-Zimsen flytur átta tonn af búnaði Bjarkar

Björk Guðmundsdóttir heldur tónleika í Reykjavík annað kvöld, ásamt fleiri listamönnum. Knappur tími var til stefnu fyrir þau átta tonn sem hún tók með sér til Íslands, þar sem hún var með tónleika í París á miðvikudagskvöldið. Sérfræðikunnátta starfsmanna TVG kom því að góðum notum til að skipuleggja þennan umfangsmikla flutning.

Búnaðurinn var afhentur til Liege í Belgíu í gær, fimmtudag, þar sem honum var lestað um borð í vél Icelandair Cargo og lenti í Keflavík í morgun. Þar tóku sérfræðingar TVG við, tollafgreiddu sendinguna og lestuðu um borð í bíla sem komu tækjunum á áfangastað í Laugardalinn.

Að sjálfsögðu mun TVG sjá svo um að koma tækjunum á næsta áfangastað á mánudag, en þá heldur Björk tónleika í Sheffield á Englandi.

Sérverkefni af slíkum toga er vaxandi þáttur í starfsemi TVG Zimsen enda hefur fyrirtækið starfsfólk með áratuga reynslu af slíkum flutningum. Má þar nefna tónleika og listsýningar af ýmsum toga. Nýleg dæmi eru tónleikar Bob Dylan, Ljósmyndasýning Viggo Mortensen, Carnagie Art Award og síðast en ekki síst Listahátið 2008.

Til baka