Fréttir

30.04.2008

TVG Zimsen styrkir átakið Á ALLRA VÖRUM

TVG Zimsen styrkir átakið „Á allra vörum”, sem nú var að fara í gang, og öllum konum í fyrirtækinu í morgun afhent gloss merkt átakinu.

Um átakið
Greiningartæki Krabbameinsfélagsins þarfnast nú endurnýjunar og framundan er að kaupa nýjan stafrænan röntgenbúnað sem greinir brjóstakrabbamein betur en hægt hefur verið fram að þessu. „Á allra vörum” er kynningar‐ og fjáröflunarátak sem hefur að markmiði að leggja Krabbameinsfélaginu lið við að safna peningum til að koma nýjum tækjum sem fyrst í gagnið.
Annars vegar verður vakin athygli, með ýmis konar kynningarefni, á því hversu alvarlegur sjúkdómur brjóstakrabbamein er og hins vegar verður safnað fé til að styrkja leitarstöð Krabbameinsfélagsins með kaupum á búnaði sem eykur möguleika á greiningu krabbameins í brjóstum á frumstigi.

Verkefnið og samstarfsaðilar
Fjármunum verður safnað með því að selja bleikt varalitagloss frá Yves Saint Laurent ‐ merkt átakinu ‐ en allur ágóði af sölunni rennur til styrktar Krabbameinsfélaginu. Heildverslun Halldórs Jónssonar, umboðsaðili fyrir vörur frá YSL og Saga Boutique, tollfrjáls verslun Icelandair, eru aðalstyrktaraðilar átaksins ásamt Flugfélagi Íslands. Átakið var formlega sett af stað þann 29. apríl þegar tíu konur tóku formlega við fyrstu glossunum. Varalitaglossin verða seld frá maí – ágúst 2008 um borð í flugvélum Icelandair og einnig í fríhafnarverslunum Flugfélags Íslands í Reykjavík og á Akureyri. Að auki verða varalitaglossin seld til fyrirtækja sem vilja styrkja átakið með kaupum á vörunni fyrir starfsfólk sitt. Með kaupunum styrkja fyrirtækin í landinu átakið “Á allra vörum”. Hvert varalitagloss mun kosta kr. 2.000 og allur ágóði mun renna til
Krabbameinsfélagsins.

Til baka