Fréttir
25.03.2008
Austurlönd fleiri möguleikar - Græna leiðin
Austurlönd
Fleiri möguleikar í flutningum milli Asíu og Íslands.
TVG Zimzen býður nú upp á þrjár mismunandi leiðir í flutningum frá Asíu til Íslands. Fyrir utan hefðbundnar flug og sjóleiðir þá bjóðum við nú þriðju leiðina og förum milliveginn í flutningskostnaði.
Hvað er græna leiðin ?
Græna leiðin er hugsuð sem “add value” þjónusta fyrir viðskiptavini TVG
Flutningsleið sem tekur lengri tíma en flugleiðin en skemmri tíma heldur en sjóleiðin. Í fyrstu verður þessi leið eingöngu í boði frá Hong Kong
Sérstaklega hentug á “peak season” tímabilum þar sem erfitt er að fá pláss í flugvélum og varan situr föst en tíminn líður.
Einnig hentug fyrir þá sem vilja fá sínar vörur hraðar heldur en með venjulegri sjóleið en eru ekki tilbúnir að borga fyrir fulla flugfrakt.
Hvernig fer þetta fram ?
Varan siglir með safngámum frá Hong Kong til Dubai þaðan sem hún flýgur með Cargolux til Keflavíkur gegnum Luxemborg/Köln.
Dubai flugvöllur er ekki eins þéttsetinn og Hong Kong flugvöllur og því aðgengi að flugplássi mun betra og skilvirkara á þeim tímum sem erfitt er um vik að koma vöru út úr Hong Kong
Hver er flutningstíminn ?
Heildarflutningstíminn er 18 – 20 dagar frá höfn Hong Kong og komið til Keflavíkur.
Við aðstoðum viðskiptavini við að vega og meta hvaða leið hentar best hverju sinni.
Til baka